Árgangur 86 frá Borgarnesi
21.12.2008 21:21:19 / borgo86

takk fyrir síðast

Jæja krakkar takk fyrir síðast, þetta var mjög gaman.

endilega ef einhver vill setja eh a síðuna þá er notendanafnið borgo86 og lykilorð er borgo86 mjög auðvelt.

En endilega reynum að setja eh reglulega inn á síðuna..

kveðja sigga dóra


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2008 20:10:52 / borgo86

1.dagur

Hæhæ
Ég var að fá símtal frá Sigga Hall með það að hann vill bjóða okkur jólahlaðborð á sama verði í stað þess að fá 3ggja rétta máltíð.
 Ég talaði við nokkra aðilla og þau tóku vel í það, þannig ég sagði já við hann við því :)  Þá mætum við klukkan átta og fáum okkar borð í stóra salnum, og borðum eins og við viljum af forrét, aðalrétt og eftirrétt :) og svo þegar við erum búin að borða þá færum við okkur yfir í sal sem við fáum útaf fyrir okkur. Það eiga að vera eitthver skemmtiatriði í gangi meðan við borðum.....
Við fáum tilboð á áfengi á barnum :)

Minni á litlu jólin: koma með smá pakka hver.

Mæting klukkan átta og við megum sitja þarna til klukkan 02.

Ég vona að fólk síni skilning á þessum breytingum og verði jákvæð :)

Hringið í Geira ef þið vitið ekki hvar þetta er nr hans er 848-4046
Hlakka til að sjá alla í góðu skapi á morgun :)

» 8 hafa sagt sína skoðun

10.12.2008 18:42:12 / borgo86

:)

Hæhæ.
Ég er svo ótrúlega ánægð með mætinguna :) helt að við höfðum þetta ekki í okkur haha. En það hlaut að koma að þessu að hafa almennilegan hitting.

En þeir sem eiga eftir að svara eru: Einar ágúst, Gummi, Ingibjörg, Tommi og Guðný Dóra
Þannig ef þið eruð í sambandi við þau þá endilega segjið þeim að drífa sig að svara því ég ætla að senda þetta á föstudaginn til hans Árna !
Einnig eru nokkrir sem eiga eftir að segja hvorn matseðilinn þeir vilja (hægt að skoða þá í færslunni hér fyrir neðan). og þið getið séð listann yfir mætingu og hvort það er búið að skrá matseðil á ykkur hér í efstu dálkunum til vinstri.

Við heyrumst og þeir sem eru í prófum, gangi ykkur vel :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.11.2008 09:27:28 / borgo86

matseðill

jæja krakkar þá eru komnir matseðlar. Við fáum 3ggja rétta máltíð á 3600.
Og set ég tvo matseðla upp og svo þurfið þið að setja komment eða tala við mig eða kristínu um hvorn matseðilinn þið viljið fá.

Matseðill 1.

Humarsúpa að hætti
Leikhúskjallarans



Heilsteikt nautafillet
með smjörsteiktu grænmeti, fondant kartöflu og bernaise sósu.



Eftirréttir af
jólhlaðborði.




Matseðill 2.

Hreindýrapaté með
cumberland sósu.



Þorskhnakki með
spænsku grilluðu grænmeti og rósmarín kartöflum.





Eftirréttir af
jólahlaðborði



Verð krónur 3.600

Þetta er alveg æðislegt tilboð og fáum við sérsal til að vera í.
Það er mæting klukkan 20.00





það eru enn sumir sem eiga eftir að svara þannig endilega
ýtið á eftir liðinu.
heyrumst fljótlega


kveðja sigga dóra
****MUNIÐ EFTIR AÐ KOMA MEÐ PAKKA**** miðum við svona 500 til 1000 kall ;) - Þeir sem gleyma pakka verða svo óheppnir að fá þá engan pakka :haha: (þannig að ég gleymi pottþétt pakka...) hehe

Kv. Kristín
Og eitt enn, ef þið eigið myndir eða eitthvað sniðugt þá endilega komið með eða látið okkur vita hérna, Kristín, Sonja og Helga eru í skemmtinefnd :D



» 32 hafa sagt sína skoðun

23.11.2008 23:55:11 / borgo86

:)

ég er ekkert smá ánægð með viðbrögðin :)
en það eru enn nokkrir sem eiga eftir að svara, þannig ef þið viljið vera svo væn að kíkja á listann og sjá hverjir eru ekki búnir að svara, og ef þið eruð með nr hjá viðkomandi að ath með þau, og segja þeim að kíkja á síðuna og svara :)
en ég fer á fullt í byrjun þessara viku að plana þetta með árna...
þannig það fer að koma lokaniðurstaða.. kl hvað, hvað verðið er og hvað við fáum að borða...
hef bara ekki haft mikinn tíma til að gera þetta þannig þið verðið bara að fyrirgefa mér það.

en endilega hafið samband við restina af liðinu :)

hilsen
sigga dóra


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.11.2008 21:04:01 / borgo86

Hittingur

Jæja krakkar þá er loksins komin staðfesting.

Við förum að borða hjá Árna og Sigga Hall, 19 desember... við fáum þar 3 rétta máltíð á fínum díl og fáum sér sal, einnig megum við sitja þarna til rúmlega 2, þannig það er bara æðislegt :)
Þetta verður þriggja rétta máltíð :) ekki alveg komið fast verð á þetta,eða hvernig útlit er á matseðli en þeir lofuðu öllu góðu, og hef ég fulla trú á því :)

ef þið eigið eitthverjar skemmtilegar myndir frá grunnskólaárunum eða myndbönd, sendið þá sonju myndirnar, hún er komin í skemmtinefnd. e-mailið er mrssondix@gmail.com

sendið mér mail á siggadora86@visir.is ef þið ætlið að koma með og hvort þið eruð ein eða með maka..  og ég reyni að setja það jafnóðum inn á síðuna við hliðina a nöfnunum okkar í bekkjarlistanum hverjir ætla að fara með :) líka þeir sem ætla ekki að mæta þurfa að láta vita.
þannig núna er það undir okkur öllum komið að láta alla vita af þessu!!!!!!
hlakka til :)
kveðja Sigga Dóra.


» 30 hafa sagt sína skoðun

05.11.2008 09:40:45 / borgo86

...

oki ég er að leifa ykkur að fylgjast með.
það er alltaf verið að kanna ný og ný tilboð. :)
siggi hall og árni í þjóðleikhúskjallaranum vilja gefa okkur góðan díl í 3 retta máltíð með því skilyrði að við drekkurm mikið á barnum. Ég er bara að bíða eftir lokasvari frá þeim og ef það gengur upp þá förum við þangað því þetta er mjög góður díll.

það kemur vonandi svar frá þeim í dag eða á morgun. læt ykkur þá strax vita.



» 3 hafa sagt sína skoðun

30.10.2008 15:41:58 / borgo86

smá upplýsingar

jæja sælt veri fólkið.. enn og aftur virkilega ánægð með góðar undirtektir.

svona til að leyfa ykkur að fylgjast með gangi mála, þá hefur ég verið að spjalla svolítið við konuna á grand og hún hefur tilkynnt mér það að við getum fengið sérsal á 4 hæð hússins fyrir okkur, þá verður sett hlaðborð bara til okkar og það er bar og svalir sem er stór plús ;) og hægt að hafa tónlist og skemmtilegheit þar, og meigum við vera þar til um 2. Þannig mér finnst það geggjað, en þetta kostar náttla meira, hún sagðist vera tilbúin að leigja okkur salinn á 25 þúsund í stað 40 þúsund. þannig þetta er umhugsunarefni. en svo sagði hún mér að það er salur á 1 hæð sem við getum mögulega fengið að vera útaf fyrir okkur, hún talaði um að það er oftast rólegt hjá þeim síðasta föstudag fyrir jól. þannig þá gæti hún mögulega gert það þannig að láta okkur hafa þennan sal og reyna að hagræða því þannig að við verðum bara ein, en hún sagðist ekki getað lofað því en henni fanst það líklegt :)
en ég á eftir að tala við árna bróðir hans geira um tilboð hjá honum, hann sagði við geira að við gætum fengið einhvern góðan díl hjá þeim. þannig við chekkum á því :)
en aftur á móti milli jól á nýárs (ingu tinnu hugmynd) þá hef ég fengið bæði neikvæð og jákvæð svör. Mér finnst það vera neikvætt því það er væntanlega djammað þarna annan í jólum, svo þetta og svo gamlárs, mér finnst það bara of mikið. En ef það eru fleiri sem verða alveg brjálaðir ef þetta verður ekki milli jól og nýárs, þá bara látið okkur vita.
En þegar ég kom með þetta fyrst þá átti þetta bara að vera auðvelt, en ég veit ekki hvern ég var að blekkja með því.. það náttla er aldrei hægt að gera öllum til geðs.
En ég þarf hjálp frá ykkur því í næstu viku þarf ég þá væntanlega að panta fyrir hópinn.. og það vita næstum því ekki allir af þessu, þannig ef þið eruð með númerið hjá einhverjum sem er ekki búin að sýna lit á þessari síðu þá megið þið hringja í þau og láta vita af þessari síðu og segja þeim að fylgjast með. Því þeir sem eru harðákveðnir að mæta þurfa að senda mér mail í næstu viku með fjölda hvort þið eruð ein eða með maka. og ég sé um að skrá það og svo panta ég í lok næstu viku.

en jæja látið vita bara ef það er einhvað sem er að bögga ykkur kæru bekkjarfélagar. :) og endilega vera jákvæð líka :)
kveðja sigga dóra


» 15 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 11:33:40 / borgo86

Góð viðbrögð


Ótrúlega ánægð með ykkur.. oki ég á eftir að heyra frá geira hann ætlaði kanna eitthvern stað. en ég er búin að fá svar frá nokkrum stöðum en mér persónulega líst best á grand hotel.. kíkið inn á www.grandhotel.is og kíkið á matseðilinn. Hún svaraði mér um að það væru ekki gefin tilboð til hópa því að þau eru búin að lækka verðið á þessu töluvert, þannig við skiljum það alveg en þetta er alls ekki dýrt :) oki maturinn kostar 6600 og ef við viljum gista þá er það 5000 krónur aukalega og inn í þessu er drykkur fyrir mat. og svo er hann friðrik ómar að spila til klukkan hálf 12.
mér líst geggjað vel á þetta, ég fór þangað í fyrra og maturinn var mjög góður.
en svo var hún margrét brynjars að spyrja með makana :) góð spurning....
en minn maki kemur allavega haha.. en ég hugsa að það verði nú í lagi ef að þið viljið taka makana með. :) þá er hægt að gera rómanstíska ferð úr þessu, borða og gista á hóteli, getur ekki verið betra. en segjið bara ykkar skoðun á þessu, ég ætla allaveag ekki að vera leyðinlega manneskjan og segja nei, undir ykkur komið hvað þið viljið.
en ég held að það sé ekki hægt að hafa þetta fyrr eða seinna sorry inga tinna. u náttla bara sleppir að fara til útlanda, hittir frekar okkur :) . mér finnst þetta þurfa að vera á föstudegi eða laugardegi. og það eru allir pottþett búnir prófum þá.. en enn og aftur ef það eru fleiri ósáttir við 19 des þá að láta vita.. því við þurfum að fara að panta þetta hún talaði um að ef við erum stór hópur þá þarf að gera það fyrr en seinna..

oki ég var að taka eftir því að laufey oddný var að tala um broadway, er einhver sem hefur áhuga á því, eigum við að skoða það einhvað frekar ?
laufey oddný, ef áhuginn er mikill þá ferð þú bara í þetta og skoðar málin... láttu mig vita með tilboð..

einn punkur í viðbót.. hér í vinstra horni uppi er listi yfir bekkjarfélaga og getur vel verið að það vantar einhvern inn á hann, þannig ef þið getið gefið ykkur tíma og lesið yfir hann og ef þið sjáið að það vantar nafn setjið það þá í komment og við reddum því..

kveðja sigga dóra



» 23 hafa sagt sína skoðun

27.10.2008 21:14:58 / borgo86

taka 2

jæja krakkar..
á leiðinni heim úr skólanum í dag, fékk ég þessa æðislegu hugmynd að ath hvernig stemmarinn væri að fara á jólahlaðborð saman og skemmta okkur í höfuðborginni....
Þannig ég ákvað að setja hérna pistil til að ath hvernig þið takið í þetta. þannig látið þetta berast og setjið komment á þetta hvernig ykkur líst á....
dagsetningin sem er líklegust er fös 19 des, því þá er held ég pottþett að allir eru búnir í prófunum.

kveðja sigga dóra


» 17 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 22:58:13 / borgo86

hey mambo

Það er nú ekki spurning hvort nefndin getur það ekki, en ég veit nú ekki betur en maður er búinn að reyna alveg að halda einhvað og það var haldið vel heppnað reunion síðasta sumar, það mættu fáir en þeir sem komu skemmtu sér bara mjög vel og var það mjög gaman, en þetta er bara áhugaleysi í fólkinu að nenna ekki að gera neitt.. ég er búin að fá nóg af því að fólk sé að kenna mér um að ekkert sé gert, og það eru þónokkuð margir sem ég hef talað við og þeir hafa sagt já við að taka þetta að sér og gera einhvða, og viti menn ekkert gert.

húff það var gott að koma þessu frá,

en ég fylgist alltaf með þáttunum high school reunion og það er spurning hvort við förum til hawai eftir 10 ár, þetta lítur alveg út fyrir að vera gaman, fyllirí og nóg af drama, eina sem við lifum á :)

en ég bíð spennt eftir commentum haha :) kíki á ykkur eftir tvær vikur því að kjellan og kallin erum að fara til costa del sol :) húff nice

heyrumst


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 21:49:08 / borgo86

Allt of langt síðan einhvað var skrifað.

Sælt veri fólkið, ég beið spennt eftir reunioni í janúar, en það hefur örugglega bara einhvað komið upp á hjá stelpunum sem ætluðu að sjá um þetta...

 En það sem ég var að hugsa er hvort einhver vill bjóða sig fram og skipuleggja einhvað í sumar, þarf ekki að vera stórt, kannski bara að leigja bústað, hver kemur með sitt dót, og svo gista þeir sem vilja.. það er eina sem þarf, hugsa að það sé kominn tími á að einhvað gerist. En ég get svosem alveg séð um að panta bústað í sumar, en ef það er einhver sem vill plana alvöru reunion í sumar, þá er það alveg opið.. bara kvitta hérna og segja að þeir eru tilbúnir að taka það að sér.  Ef það er enginn þá mun ég bara finna einhvað sniðugt að gera. :) eða hringja í einhvern og þvinga þetta upp á þau :) spurning hvort að strákarnir okkar vilja ekki gera einhvað :)

en endilega kommentið einhvað og reynum að lífga þetta aðeins upp. :)

 kveðja frá frakklandi

sigga dóra


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 00:37:03 / sonja

Reunion??

Jæja ég er aðeins búin að kíkja í þetta og var að spá í dagsetninguna 6 janúar?? það er að vísu á 13anum. En þá eru bara meiri líkur á því að það verði ball líka!!! mér fanst þetta heppilegur tími því þá eru jólin búinn og allir búnir að fá útborgað fyrir jóla vinnuna og skólinn varla byrjaður.....:lol:

Én já ég er búinn að vera í sambandi við indriðastaði og talað við þá um að fá party hlöðuna þeirra leigða 1 kveld!! og er leigan ca 900kr á mannin og svo er bara spurning hvað þið viljið hafa meira ?? hvort þið viljið að þau grilli einhvað fyrir okkur eða við komum með okkar eigið að grilla, hvort við viljum láta þau plana einhverja leiki og kanski fara í klivur veggin (en þá hækkar verðið) eða bara að við finnum okkar dagskrá!!:klikk:

En mín hugmynd var þannig að við mundum hittast út í óðal (kanski) og horfa á gömul bekkjar kvöld og skoðar gamlar myndir af bekknum og kanski hafa leinigest?, fara svo með rútu/einkabílum upp á indriðastaði þar sem við getum sitið og spjallað , leikið okkur í púllborðinu, fótboltaspilið, drukkið,grillað, farið í leiki, og skemmt okkur saman!! svo að rútan pikki okkur upp og ef svo skemmtilega vildi til að það skildi vera ball þá unu við bara lára rútuna keira á ball eða bara heim... 8)

þetta er bara svona lítið skemmtilegt kvöld þar sem við getum öll rifjað upp gamlar mynningar og haft gaman!!:!:

en ef það er einhvað sem ykkur fynst að ætti að vera meira eða minna í þessu þá endilega kommentið eða bara hryngja í mig og spjalla ef þið eruð með fleiri sniðugar hugmyndir...

ef enginn kommentar þá prenta ég bara útt boðskortin, sendi út og hryngi ... (en vill samt fá ykkar skoðunn líka):haha:

reunion


» 11 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 10:41:53 / borgo86

sælt veri fólkið

hæ þetta er sigga dóra, ég var bara svona að velta fyrir mér hvort að fólk væri geim í það ef að við myndum leigja okkur bústað yfir eina nótt!! bara einhverntíman í bráðina, þeir koma bara sem vilja koma :) ég hugsa að það myndi vera mjög skemmtilegt, en það fer náttla eftir því hvernig fólk myndi taka í það...... endilega komið með einhverja aðra hugmynd ef ykkur dettur einhvað annað í hug

» 22 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 18:22:13 / Arnar

reunion-dagurinn-mikli

jæja þá er reunionið hálfnað og er búið að vera alveg rosalega gaman, og mjög flottur hópur sem mætti, fámennt en góðmennt :) gaman var að fara upp í skóla og óðal, það rifjuðust upp gamlar minningar, mikið hlegið og djókað :) en svo fórum við í íþróttahúsið þar sem við fórum í leiki sem við vorum vön að fara í leikfimi á okkar yngri árum, og skemmti fólk sér alveg konunglega.... nú sitjum við nokkur hér heima hjá svanberg og erum að rifja upp gömlu videokvöldin :) heima hjá honum :) en svo klukkan 20 förum við á hótel hamar og borðum góðan mat :) svo auðvitað skellum við okkur á ball á venus með stuðbandalaginu, og búumst við fjölmenni þar :) ´86 árgangurinn kann sko að skemmta sér, en undantekning í dag þar sem 1/3 bekkjarins kom og tók þátt í reunioninu :) en það það er bara þeirra missir sem gátu ekki gert sér kleift að koma og skemmta sér með okkur... en vonandi sjáum við sem flesta í kvöld á venus.... Sigga Dóra og Lóa :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Könnun
heldur þú að þú mætir ekki því þetta er of dýrt ? (matur er um 6600)